krúttið:)
Klukkan
Myndabloggið mitt
04.01.2010 20:28:23 / henngust

Stjörnumerkin !

Stjörnumerkin.

Hrúturinn: Er ofvirkur, trúr og traustur en er alltaf að gera eitthvað sem þú getur eiginlega ekki með góðu móti fylgst með nema vera hrútur sjalfur, þeir sletta ærlega úr klaufunum þegar þeir eru makalausir en ástfanginn hrútur flýgur um á bleiku skýi hvort sem ástin er endurgoldin eða ekki. Og hrútur sér næstum aldrei neikvæðar hliðar á neinu.

Nautið: Þægindi, rólegheit og sama gamla góða farið er það sem hentar nautinu, það vill gera allt með engri fyrirhöfn og er nautnamanneskja fram í fingurgóma. Það er oftast alla ævi í sömu vinnu, hefur sömu áhugamálin á lengi sömu vinina og er á allan hátt einsog klettur.

Tvíburinn: Er alltaf að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt, klárar sjaldan verkefnin sín en er alltaf á leiðinni að fara að slá í gegn með hinu og þessu, allir elskhugar tvíburans eru æðislegir og frábærir en það er samt eina sanna ástin sem festir sig djúpt inní tvíburanum og sleppir ekki svo glatt þannig að þó það sé ekki í boði að vera afbrýðisamur útí tvíburann þá má tvíburinn vera afbrýðisamur útí þig.

Krabbinn: Er heimakær, þó hann hafi yndi af útiveru og náttúrukukli allskonar þá vill hann bara vera heima hjá sér í rólegheitunum á milli þess sem hann ákveður að fara á stúfana. Ástfanginn krabbi er algjörlega fastur inní sápukúlu sakleysisins og ef einhver hefur séð blinda ást þá hefur það líklegast verið þegar krabbi átti í hlut. Krabbi getur tekið að sér hvaða vesaling sem er og reynt að bjarga honum.

Ljónið: Er afar ánægt með sjálft sig og lykillinn að hjarta þess er að skjalla það nógu mikið, ljón eru afskaplega ákveðin og það er allt mjög klippt og skorið þegar skoðanir þess eru annas vegar.
Þú átt engan séns í ljón ef þú ert ekki með stjörnur í augum nálægt því . Þegar ljónið er orðið fullvist um að þú sért sá/sú eina rétta þá ertu dottin/n í lukkupottinn.

Meyjan: Smásmugulegri karakter finnst varla á þessari jörð, hvort sem það eru frásagnirnar eða íbúðin þá er hvert einasta smáatriði tíundað í pínulitlar einingar sem ekki er hægt að hundsa. Meyja er besta foreldrið , besta barnið og besti vinurinn (á eigin forsendum) og viðurkennir aldrei mistök, minnstu mistök annarra breytast á ógnarhraða í úlfalda úr mýflugu , Meyjunni finnst alltílagi að brjóta eigin reglur en ef einhver annar dirfist að beygja reglur meyjunnar eða fara í kringum þær þá er hinn sami dauður í huga meyjunnar. Ástfangin meyja er algjörlega blind á makann og passar því ótrúlega vel við krabbann að því leytinu.


Vog: Er alltaf að leita að milliveginum og er alltaf að bíða eftir einhverju. Vog er ekki fullkomlega ánægð nema allt sem hún vill er til staðar og allt sem hún biður um sé uppfyllt. Vog er samt ekki ósanngjörn eða frek, hún vill hafa fullkomið jafnvægi í kringum sig, hún gefur aðeins einsog hún hefur fengið og rétt skal vera rétt. Vog er alltaf að leita að hinum fullkomna maka en því miður skilur hún ekki að hann er ekki til. Ef svo ber undir að vogin verður ástfangin þá er hún ástfangin fram í rauðan dauðan.

Sporðdrekinn: Er skemmtilegur, oft fallegur og kynþokkafullur og betri maka, foreldri, barn eða vin eignast þú ekki. Sporðdrekinn stingur fast og þarf að eiga sterka að, því ef þeir gera mistök þá eru þau mistök yfirleitt mjög víðtæk og kannski ekki á allra færi að höndla þau.
Sporðdrekinn er einfari og þeim líður best einum með sjálfum sér, samt færðu ekki skemmtilegri gest í samkvæmið. Ástfanginn sporðdreki er jafn óútreiknanlegur og eldurinn.

Bogamaðurinn: Er alltaf að flytja, hann getur ekki fest rætur og það er mikið rót í kringum bogamanninn, hann er góður og bjartsýnn lætur ekkert stoppa sig af í einu eða neinu og finnst hann vera frjáls einsog fuglinn. Hann vill alls ekki vera í 9 -5 vinnu á sama stað í langan tíma og líður illa ef hann finnur þengja að sér. Hann er draumóramaður og er seinn að finna hina einu og sönnu ást.

Steingeitin: Furðulegri karakter getur þú hvergi fundið, steingeitin er formföst en samt flippuð, hún getur verið útigangsróni sem er samt með dagskrána skipulagða uppá sekúndu. Þetta fólk hefur sín prinsipp algjörlega á hreinu og getur ekki breytt útaf vana sínum þó það reyni af öllum lífs og sálar kröftum. Það er erfitt að kenna þeim nýjar reglur ef það er komið inní eitthvað áður og vonlaust að telja þeim hughvarf. Samt eru óvissufaktorarnir margir í þeirra útliti , hegðun og framkomu. Ástfangin steingeit hagar sér enn furðulegar en vanalega.

Vatnsberinn: Er samræðufús, hefur gaman að því að krydda sögurnar kröftuglega og á alltaf til góð ráð. þó hann sé nú kannski ekki að fara eftir þeim sjálfur. Hann er góður og traustur vinur, félagi , maki og allt það en á það til að fara útí eitthvað sem enginn hefur trú á og er þar af leiðandi oft misskilinn.Vatnsberi stendur með sínum í gegnum súrt og sætt.

Fiskurinn: Fer sínar eigin óútreiknanlegu leiðir sem enginn skilur í upphafi , hann vill oft synda upp á móti hinum almenna straumi og fær oft miklu meira mótlæti en hann þarf. Það vantar ekki skapið eða ákveðnina í fiskinn og hann fær alltaf allt sem hann vill, ekkert endilega eftir heiðarlegustu leiðunum . Fiskur laðast að ólíkum karakterum og er mjög vinsæll.

 
Afar fróðlegt.." href="http://blogg.visir.is/margretr/2007/10/13/stjornumerkin-i-ruminu-afar-fro%c3%b0legt/">Stjörnumerkin í rúminu ;) Afar fróðlegt..

Vatnsberi(20.jan - 18.feb)

Vatnsberinn þarf fyrst og fremst þolinmóðan, skilingsríkan og hlýjan bólfélaga. Rúmið þarf að uppfylla væntingar hans svo hann fái notið sín.

 - Hræðist náin kynni.
- Feiminn en auðmjúkur
- Hann er yfirleitt feiminn
- Svolítið tilbaka í persónulegum samskiptum
- Fæstir komast í gegnum skelina og kynnast honum náið
- Hógværð hans er heillandi í rúminu
- Á erfitt með að vera opinnn og óheftur í rúminu
- Laðar að sér fólk sem hann þráir, slík er hugarorka vatnsberans
- Vill deila miklum tíma með elskhuga sínum í rúminu
- Getur verið allt með elskhuga sínum; jafningi, ástmaður, kennari, einlægur vinur og bólfélagi

 ——————————————————————————–

Fiskur(19.feb - 20.mars)

Fiskurinn er stórkostlegur elskhugi svo lengi sem honum finnst hann vera verndaður tilfinningalega og elskaður alla leið. Vandræðin hljótast eingöngu ef fiskurinn elskar sjálfan sig ekki nóg.
- Dularfullur, fallegur, rómantískur í rúminu
- Oft flæktur í eigin tilfinningar og nær því ekki að einbeita sér nóg
- Á það til að forðast velgengni og eyðir lifi sínu í dagdrauma.
- Gæddur mjúkum, rafmögnuðum ákafa eins og nýtur þess að kúra
- Nýtur þess að láta drottna yfir sér (í rúminu) en stefnir um leið að því að hafa stjórn
- Vill að kynlífið sé skemmtilegt, margslungið og tilbreytingaríkt
- Kynlífið er könnunarferð í huga fisksins
- Hann leitar að sameiningu ástar og kynlífs með elskhuga sínum
- Leitar eftir samböndum sem fylla hann von og ást
- Hann heldur tryggð við konuna sem hann fellur fyrir

——————————————————————————–

Hrútur(21.mars - 19.apríl)

 Hrúturinn nálgast kynlífið eins og allt annað í lífinu: hvatvís og kappsfullur. Hann er opinn fyrir öllu en elskhugi hans ætti ekki að spyrja hann um morgundaginn því hann er ekki fyrir kynferðislega einokun.
- Sængurver úr silki eða satín eflir hvatir hrútsins - Rómantískur, ástríðufullur, kynferðislegur og lostafullur
- Kröfuharður og fyrir honum er rúmið orustuvöllur nánast
- Elskhugi hrútsins þarf að þola sálrænt ástand og geta sætt sig við þá orku sem fylgir reiði og ákveðni og ekki síður orku ástarinnar
- Líkar vel að skreyta rúmið með óteljandi púðum
- Næmur, heiðarlegur og hefur óbeit á uppgerð í rúminu
- Þolir ekki að láta sér leiðast
- Hann er hvetjandi og drífandi.
- Hann tilheyrir eldmerki: trygglyndur og örlátur á atlot og strokur
- Hann þarfnast félaga sem er jafn ákveðinn og hann í rúminu

——————————————————————————–

Krabbi(22.júní - 22.júlí)

Krabbinn er feiminn en hefur ríka kynhvöt.Kynlíf er krabbanum kjarni lífsins og tal hans, lykt, matargerð og bros geisla af kynþokka - Hart rúm stuðar krabbann nánast
- Vill sökkva með elskhuga sínum inn í nóttina áhyggjulaus og frjáls
- Næmur á fólk og umhverfið og kýs þess vegna snyrtilegt mjúkt rúm
- Næmi og innsæi hans eru slík að hann er mjög viðkvæmur fyrir rúminu
- Allra manna þolinmóðastur í rúminu
- Ástarvef sinn vefur krabbinn fínlega og dramatískt í rúminu
- Púðar skipta engu máli heldur þarf rúmið að vera hreint og fallega búið
- Flekandi og föðurlegur í samskiptum við elskhuga sína
- Leitast við að prófa sig áfram í rúminu

——————————————————————————–

Ljón(23.júlí - 22.ágúst)

Stærsta vandamál ljónsins er óraunhæfar væntingar í rúminu. Það vill hart stórt rúm og kýs helst að sofa,lesa,elskast og borða í rúminu allan sólahringinn.
- Geislar af sjálfsöryggi og reisn í rúminu (sjálfsöryggið ómótstæðilegt).
- Getur verið ákaflega kröfuhart við elskhuga sinn og jafn örlátt
- Svo fremi sem því finnst það vera elskað eða eftirsótt þá er það nokkuð öruggt í rúminu
- Þegar það er ástfangið reynir það í sífellu að sigrast á tregðu sinni til að leggja eitthvað á sig fyrir aðra
- Kýs tvær sængur því það gefur ekkert eftir í svefni og vill helst hafa sængina milli læranna
- Ljónið þarf ástvin sem skilur eigin væntingar varðandi athafnir í rúminu svo hann geti aðstoða það við að verða meðvitað um sínar
- Elskhugi ljónsins þarf að búa yfir óbugandi þolinmæði í rúminu - Auðmýkt ekki til í ljóninu - Með skjalli er hægt að láta það gera hvað sem er í rúminu

——————————————————————————–

Naut (20.apríl - 20.maí)

Nautið þarf þægilegt rúm og elskhuga sem endurspeglar styrk þess og tilfinningalegan stöðugleika í rúminu.
- Ímyndunarafl er óþarft ef nautið er ánægt
- Mjög rómantískt og viðkvæmt
- Blítt, fálátt og feimið í rúminu
- Þægindi og ánægja skipta nautið miklu máli og þá eru þægilegir koddar mikilvægir
- Staðfast og heimakært og kýs því þægilegt rúm sem kallar á það í hvert sinn sem það kemur heim eftir erfiðan dag
- Er mjög gefandi í samskiptum við elskhuga sinn í rúminu
- Það er opið til líkama, sálar og anda
- Þegar því líður vel í rúminu gefur sig allt

——————————————————————————–

Tvíburar(21.maí - 21.júní)

Skilmálar í rúminu er eitthvað sem tvíburinn hreinlega þolir ekki. Hann er hamingjusamastur þegar hann elskar og nær að hvílast vel.
- Skemmtilegur og örvandi í rúminu
- Honum verður aldrei orðavant þegar elskhugi hans nennir að kjafta alla nóttina
- Mjög heillandi elskhugi og tillitssamur svo lengi sem hans helmingur(í rúminu) stendur óáreittur
- Hann hefur mikið skopskyn og hnittni hans og töfrar eru á við forleik í rúminu - Þráir að vera elskaður af ákafa og veltast um rúmið ef plássið leyfir
- Tvíburanum er vel við börn og þarf stórt rúm svo öll fjölskyldan geti sofið þar

——————————————————————————–

Meyja(23.ágúst - 22.sept)

 Meyjan verður að fá að sofa út þegar hún er þreytt til að geta blómstrað í rúminu. Kröfuharkan verður nánast engin þegar hún sefur í góðu rúmi.
- Hreinleg og ástríðufull
- Rómantískur og gefandi þegar ástarleikurinn hefst
- Það líkist töfrabrögðum svo kynþokkafull er meyjan í svefni jafnt sem vöku
- Meyjan álítur snertingu eðlilegan þátt í rúminu
- Hún gerir mjög miklar kröfur og leitar alla tíð að fullkomnun í rúminu
- Aðeins þrá meyju eftir ástarævintýri jafnast á við mikla forvitni hennar
- Hann er innilega forvitin í rúminu
- Þarf elskhuga sem vill eiga auðugt og spennandi kynlíf
- Þarf elskhuga sem er frjáls til líkama og sálar
- Þarf elskhuga sem er örugg með kynlífstækni sína í rúminu

——————————————————————————–

Vog(23.sept - 23.okt)

 Elskhugi vogar verður að vera þolinmóður og skiliningsríkur og viðurkenna þörf hennar fyrir aðdáun og blíðu í rúminu.
- Þegar vogin hefur fundið ástina er ekki aftur snúið
- Undanlátssöm í rúminu
- Kýs að þóknast öðrum en getur líka verið ákveðin í rúminu
- Leitar í sífellu að fyrirmyndar elskhuga í rúminu og þegar hún finnur hann er hún sátt að eilífu
- Nákvæm og vandlát í rúminu
- Henni er illa við hirðuleysi og vill því að rúmið sé snyrtilegt og vel búið um
- Illa við einveru og kýs að hafa einhvern hjá sér öllum stundum upp í rúmi
- Kýs ástvinu sem getur nært hana á tilfinninga- og kynferðislega sviðinu í rúminu

——————————————————————————–

Sporðdreki(24.okt - 21.nóv)

 Sporðdrekinn nær taki á elskhuga sínum með persónutöfrum sínum,dýpt og þrautseigju í rúminu. - Stjórnsamur en ákaflega trygglyndur og næmari en nokkurn grunar í rúminu
- Skynhneigður og ástríðufullur elskhugi
- Eigingjarn og jafnvel leynilega sadískur í rúminu ef hann treystir og tengist náið elskhuga sínum
- Öfgafullur, allt eða ekkert í rúminu
- Afbrýðisamur ef elskhugi gefur sig ekki allan í rúminu
- Þegar sporðdrekinn er ástfanginn getur hann verið kynþokkafullur með afbrigðum
- Hann er fæddur til kynlífs og valda og það á einnig við í rúminu
- Kröfuharður og lostafullur og kýs að hafa umhverfið á sömu nótunum (stórt og mikið rúm og silkirúmföt)

——————————————————————————–

Bogmaður(22.nóv - 21.des)

Bogmaðurinn er fær um að skapa skínandi stemmingu við hvaða aðstæður sem er og býr til rómantíska stund án fyrirhafnar með krafti sínum og hugsjónum.
- Einlægur
- Hreinn og beinn
- Fyrir honum er kynlíf hátíð
- Í kynlífsfélaga sínum leitar hann að félaga og samferðaelskhuga
- Harðbrjósta, tilfinningalaus (ónærgætinn)
- Heiðarlegur og lætur ekki bjóða sér neitt undirferli
- Hann hefur mikla þörf fyrir stöðuga örvun í ástarsambandi
- Hann lætur oft slag standa með ókunnugum og hefur elt margar myndarlegar manneskjur sem hann er hrifinn af á röndum(gefst ekki upp)
- Sterkt fegurðarskyn hans gerir hann að stórkostlegum félaga í ástarleikjum

——————————————————————————–

Steingeit(22.des - 19.jan)

Kynlíf og ást eru mjög mikilvægir þættir í lífi steingeitar en þeir fullnægja aldrei þörf hennar fyrir veraldlega viðurkenningu í rúminu
- Kynlífsglatt stjörnumerki
- Steingeitin er raunsæ og rómantísk í rúminu
- Kýs hæfileikaríkan elskhuga með sterkt ímyndunarafl
- Stekkur aldrei inn í ný sambönd án langs undirbúnings
- Þegar steingeitin elskar loksins, elskar hún ákaft og af öllu hjarta
- Auðsærð í rúminu
- Er sjálfri sér næg í rúminu en leitar samt verndar sem hún finnur í góðu sambandi þar sem jafnvægi ríkir
- Þarf ást en óttast um leið sársaukann sem hún kann að valda
- Kynþokki hennar vex með aldrinum og sömuleiðis leikirnir sem fram fara í rúminu
- Gott úthald í rúminu

 

Stjörnumerki

Dagsetningar skv. stjörnuspeki

Raunverulegar dagsetningar

Dvöl sólar í merki

Fiskarnir

19. febrúar til 20. mars

12. mars til 18. apríl

38 dagar

Hrúturinn

21. mars til 19. apríl

18. apríl til 14. maí

26 dagar

Nautið

20. apríl til 20. maí

14. maí til 21. júní

38 dagar

Tvíburarnir

21. maí til 21. júní

21. júní til 20. júlí

29 dagar

Krabbinn

22. júní til 22. júlí

20. júlí til 10. ágúst

21 dagur

Ljónið

23. júlí til 22. ágúst

10. ágúst til 16. september

37 dagar

Meyjan

23. ágúst til 22. september

16. september til 31. október

45 dagar

Vogin

23. september til 23. október

31. október til 23. nóvember

21 dagur

Sporðdrekinn

24. október til 21. nóvember

23. nóvember til 29. nóvember

8 dagar

Naðurvaldi

-

29. nóvember til 18. desember

18 dagar

Bogmaðurinn

22. nóvember til 21. desember

18. desember til 19. janúar

34 dagar

Steingeitin

22. desember til 19. janúar

19. janúar til 16. febrúar

27 dagar

Vatnsberinn

20. janúar til 18. febrúar

16. febrúar til 12. mars

24 dagar

»


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2009 12:10:41 / henngust

Meðvirkni!


Meðvirkni

Rakst á áhugaverða grein um meðvirkni sem mig langar að deila með ykkur kæru vinir, sé sjálfa mig sumum þessum atriðum, en ekki öllum!.


Meðvirkni, að lifa í þögulli örvæntingu  Eftir Gitte Lassen, ráðgjafa, heilara og miðil.

Það mun hafa verið H.D.Thoreau sem eitt sinn skrifaði:  "Flestir lifa í þögulli örvæntingu."  Þessi þögla örvænting á sér nafn: meðvirkni.

Meðvirkni eyðileggur líf þitt á tvennan hátt.  Hún spillir sambandi þínu við sjálfan þig og hún eyðileggur tengsl þin við annað fólk. 

Helstu einkenni þess hvernig meðvirkni eyðileggur samband þitt við sjálfan þig eru: lágt sjálfsmat, engin mörk, þú tjáir ekki sannleikann um sjálfan þig, þú átt erfitt með að tjá tilfinningar þínar.

Meigineinkenni þess hvernig meðvirkni skemmir tengsl þín við aðra eru;  Þú vilt ráðskast með og stjórna öðrum, þú finnur til vanmáttar og áfellist sjálfan þig, þér finnst erfitt að treysta öðrum, þér finnst erfitt að treysta öðrum, þú forðast að horfast í augu við raunveruleikann, þú átt erfitt með að mynda náin tengsl.

Sá fylgifiskur meðvirkni sem veldur hvað mestum sársauka er sú tilfinning að þér finnst að eitthvað sé athugavert við þig og sama hvað þú reynir náir þú aldrei að verða á sama báti og aðrir.  Þetta er leynda skömmin sem fylgir þeim sem eru meðvirkir og fæstir þeirra eru sáttir við sjálfan sig.  Hvernig getur þú, sem meðvirkur einstaklingur, haft tök á því að lifa góðu lífi þegar þú veist fyrir víst að þú átt það alls ekki skilið í raun?

Annar þáttur meðvirkni er það þú veist ekki hver þú ert.  Lengi vel vissi ég ekki hver ég væri.  Þessi þáttur meðvirkninnar fyllir hjartað mitt hluttekningu gagnvart öllum þeim sem eru meðvirkir; hvernig getur lífið verið annað en tómarúm ef þú ert hvergi?  Núna veit ég, sem betur fer, hver ég er, fyrir fullt og fast.  Ég bý við fullvissu, öryggi og þekkingu á sjálfri mér sem einstaklingi með eigin sjálfsmynd.

Hafir þú ekki sterka tilfinningu fyrir sjálfi þínu verður þú spegilmynd þeirra skoðana og væntinga sem annað fólk hefur um þig.  Annað fólk og atburðir í lífi þínu verða þau öfl sem móta líf þitt.  Þannig verða meðvirkir einstaklingar fórnarlömb lífsins.

Meðvirkt fólk er önnum kafið við að stjórna öðrum.  Það tekur á sig ábyrgð á lífi annarra en ekki á eigin lífi.

Margir þeirra sem eru meðvirkir standa sig frábærlega vel við að þóknast öðrum.  Þeim finnst þeir bera persónulega ábyrgð á því að gera alla ánægða, eða alla aðra en sjálfa sig.

Meðvirkni er nokkuð sem við lærum í æsku.  Fjölskyldur, þar sem sitthvað bjátar á, skapa meðvirka einstaklinga.  Hafir þú alist upp í slíkri fjölskyldu er nær öruggt að þú ert meðvirkur að einhverju marki.

Ef þú vilt öðlast heilbrigt líf og losna undan meðvirkninni verður þú að hætta að afneita eigin meðvirkni.  Þú þarft að sjá nákvæmlega hvernig meðvirkni eyðileggur líf þitt og þeirra sem eru í kringum þig.  Auk þess búa í brjósti meðvirkra einstaklinga niðurbældar tilfinningar og þær þarf að hreinsa út.  Þessi tilfinningalega afeitrun og að þú vitir hverig meðvirkni spillir lífi þínu er einmitt það sem mun gera þér kleift að hafa meira og betra val um þig og líf þitt.

Líf þitt er fyrir þig að lifa því. 

Hvernig vilt þú lifa þvi?

Hafið það gott elskurnar mínar:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2009 00:44:50 / henngust

Krúsídúllur



Krúsídúllurnar mínar litlu:haha:

Hafið það gott elskurnar mínar:haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.11.2008 20:59:30 / henngust

Skírn

Föstudaginn 21. Nóv var Goggi litli prinsinn hennar ömmu sinnar skírður, hann var reyndar ekki skírður Goggi, heldur  Viktor Máni:haha: Skírnarvottar vorum við ömmurnar þrjár:d


Thelma fékk að leika lausum hala í kirkjunni og það þurfti að hafa svoldið fyrir henni, enda prinsessan hennar ömmu sinnar:haha:



Hafið það gott elskurnar mínar:haha:

» 6 hafa sagt sína skoðun

19.10.2008 00:29:31 / henngust

Mont blogg!

Smá montblogg hérna á ferð:haha: Amma gamla er komin með Mótorhjólapróf loksins:haha::haha:
Náði að detta á æfingunni í morgun, þá sagði kennarinn velkomin í hópinn og tók í hendina á mér8| Þá er það ekki spurning hvort þú átt eftir að detta heldur hvenær:frown: En ég var á lítilli ferð og í góðum galla með hlífum á olnboga, baki og öxlum, þannig að ég fékk ekki á mig skrámu:haha: En brá óneitanlega við að detta sérstaklega útaf því að það voru ekki nema 2 tímar í prófið og ég hafði aldrei dottið á æfingu áður:d En kláraði mig allavega vel í prófinu, en viðurkenni það alveg að ég var frekar stressuð á meðan á því stóð, en himin lifandi þegar að hann tjáði mér að ég hefði staðist það:haha::haha:

Hafið það gott elskurnar mínar:haha:

» 8 hafa sagt sína skoðun

30.09.2008 20:16:14 / henngust

Klukkuð

 

Já ég var klukkuð af Helgu Hrönn!

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina

  • Hampiðjunni
  • Leikskóla
  • Stuðningsforeldri
  • Yfir Þroskaþjálfi á sambýli

 

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á

·         Ghost

·         The wedding date

·         Raise your voice

·         The Holiday

 

Fjórir staðir sem ég hef búið á

·         Reykjavík

·         Flateyri

·         Kópavogi

·         Hafnarfirði

 

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar

·         Womens murderclubb

·         The Tudor

·         Grey´s anatomy

  • Crossing Jordan

 

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum

  • Seyðisfjörður
  • Breiðdalsvík
  • Vestmanneyjar
  • Egilsstaðir
  • Barcelona

  Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg

  • mbl.is
  • barnaland.is
  • ökukennsla.is
  • soloklubburinn.com
     

Fernt sem ég held uppá matarkyns

  • Kjúklingur
  • Lambakjöt
  • Samloka með sinnepssósuJ
  • FranskarJ


Fjórar bækur sem ég hef lesið oft

  • Akstur og umferð/Bifhjól.
  • Ýmsar skólabækur
  • .......man ekki eftir fleirum , les ekki mikið 
  • Fjórir bloggarar sem ég klukka  
  •  annaisweden.blogcentral.is/
  •  steindis.blogcentral.is/
  •  sblondal.blog.is/blog/sblondal/
  •  sabbalo.blog.is/blog/sabbalo/

Hafið það gott elskurnar mínar:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 21:28:33 / henngust

Thelma Dórey 1 árs

Litla prinsessan orðin 1 árs, mikið svakalega er tíminn fljótur að líða8|



Það var bara fynið að sjá svipinn á henni þegar að allir byrjuðu að syngja fyrir hana afmælissönginn:haha::haha:

Þarna er afi Pétur(pabbi Tinnu) að hjálpa henni að blása á kertið:haha:

Hún fékk þessa flottu kápu frá okkur mæðgum í HF ásamt dúkkukerru:lol:

Opna pakka, nóg var af þeim8|



Verðum við ekki að láta fylgja eina krúttlega mynd af Gogga prins;)

Hafið það gott elskurnar mínar:haha:

» 10 hafa sagt sína skoðun

13.08.2008 12:19:31 / henngust

Goggi komin í heiminn!



Þetta er hann Goggi, sem var 18,1  mörk og 52 cm



Með kolsvart hár:haha:



Stóra systir vildi auðvitað fá að prófa að halda á honum:haha:


Þarna sagði Thelma bara "HA"HA, hehe bara fyndið:haha:

Amma Henný má ekki koma nálægt honum, en svo virðist sem allir aðrir megi það, hún á sko þessa Ömmu8|



» 3 hafa sagt sína skoðun

12.07.2008 11:29:25 / henngust

Sett á sölu, lesblindupróf...


Já þá er ég búin að setja íbúðina á sölu8| svo er bara spurning hvort að eitthvað selst af íbúðum í dag8) En það var ekkert annað í stöðunni því ekki á ég 1.759.000 í vasanum til þess að greiða viðgerðar og málningarkostnað á húsinu:$ Er ekki alveg að skilja þessa upphæð, finnst það einhvernveginn mjög ólíklegt að það kosti þetta á íbúð:klikk: og fyrir utan það ef að það þarf að skipta um gler og opnanleg fög í íbúðinni þá ber ég allan kostan af því fyrir utan þessa 1.759.0008| En svo var einhver kjáni sem heldur utan um þetta fyrir blokkina sem kann greinilega ekki að reikna:evil: því að % tala hjá honum er of há og ætlast hann t.d að ég borgi 25.000 krónum meira á mánuði heldur en ég þarf, sem svarar 125.000 of mikið í heildina og sagði svo, já við notum bara mismunin næst þegar að þarf að gera við hehe góður með sig:klikk: Ég meina verð ég íbúi þarna næst þegar að það þarf að gera við eitthvað, þetta er svo fáránlegt að það hálfa væri nóg, svo er hann að senda hótanir í símann hjá manni af ja.is:klikk: það á bara að skjóta svona lið:haha: skil ekki hverjum datt í hug að láta svona mann í þetta starf:evil:

Er búin að vera að velta því fyrir mér að selja bara bílskúrinn, sem er eitthvað 3-4 millj kr virði, en þá er spurning hvort að íbúðin verði óseljanlegri, en fasteignasalinn vildi nú ekki meina það, hann sagði að það væri alltaf kaupendahópur sem vildi helst bílskúr og svo aftur hópur sem vildi ekki bílskúr:o Þannig að það er spurning hvað maður á að gera í stöðunni, vona bara að þetta gangi upp  allt saman8|  Var reyndar að skoða fasteignamarkaðinn og það er ógrinni af íbúððum til sölu á Breiðvangnum8| Við mæðgur erum alveg sáttar við að flytja í minna, því að við höfum ekkert að gera við 5 herb íbúð með bílskúr að gera og bílskúrin alltaf í útleigu8) Værum alveg til í litla íbúð helst í HF eða Seljahverfi, í Seljahverfi er hægt að fá íbúð með bílskýli og mjög hagstæðu verði t.d:haha:Það væri nefnilega ekki slæmt að hafa bílskýli því ef að sú gamla er að fara í mótorhjóladæmið, þá er fínt að hafa afdrep fyrir fákinn:haha:

Svo er það lesblindan, af því að ég er með lesblindu þá þarf ég að taka sér bóklegt bifhjólapróf sem er bara gott mál8| En að þurfa að bíða 2 vikur eftir þessu prófi finnst mér alveg afleitt, þar sem að hinir geta nánast gengið inn af götunni og tekið prófið strax:evil: Hvaða réttlæti er í þessu, ég get ekki séð það, þetta tefur svo fyrir mér því að ökukennarinn vill að við klárum bóklega pakkann áður en við förum í verklegar æfingar, sem þýðir að verklega kennslan hjá mér getur ekki byrjað fyrr en eftir kl: 11 þann 22. júlí og sumarfríið mitt búið 23. júlí:^) ég sem ætlaði að reyna að vera helst búin að þessu eða komin allavega langleiðina með þetta8)
En ég ætla að prófa að hringja í ökukennarann og ath hvað hann segir, hann hlítur að taka tillit til þess að þurfa að taka prófið svona seint og sumarfríið búið, eða ég vona það allavega8)

Hafið það gott elskurnar mínar:haha:

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 00:14:04 / henngust

Afmæli, ökuskóli....

Til hamingju með daginn Hafdís mín:haha:
Hafdís litla örverpið er 16 ára í dag og má því fara að fá æfingarleyfi á bíl:haha: Hún fór í fyrsta ökutímann í dag:haha: hún vissi ekkert að hún væri að fara í ökutím:lol: ég lét ökukennarann hringja í hana og hann kynnti sig og sagðist vera komin fyrir utan og hún væri að fara í fyrsta ökutímann:haha: hún fór alveg í kerfi greyið en lét sig hafa það og skokkaði út í bíl og við Anna þóra horfðum á eftir henni:haha: Síðan bauð ég börnunum mín og Tengdadóttur út að borða á Fridays:haha:


Sæta örverpið mitt:haha:

Þá er sú gamla búin með ökuskólann, þá er næst að fara í bóklegaprófið og síðan hefjast verklegir tímar8) verð að segja að ég hafði mjög gaman af því að hlusta á gæjann sem kenndi okkur bóklega hlutann, hann hefur lent í griljón slysum og það er óhætt að setja að manni leyst eiginlega ekkert á þetta, bara fyrsta kvöldið:haha: En eins og hann sagði að þá er hann líklega ofvirkur og með athygglisbrest, ef að hann yrði greindur í dag8) og einhverstaðar verða þessir guttar að fá útrás8| held að það sé betra á fá útrásina á mótorhjólinu, heldur en í einhverju rugli8| Það var svo margt frólegt sem hann sagði sem maður hafði aldrei spá í, í sambandi við fólk sem ekur um götur borgarinnar á mótorhjólum, skil ekki afhverju þessi fræðsla er ekki sett allavega að hluta til inn í bóklegu kennsluna hjá þeim sem eru að taka ökupróf:$ Held að það myndi skila sér mjög vel út í umferðinni og ökumenn myndu taka miklu meira tillit  til  fólks sem ekur um á mótorhjólum, ekki spurning:haha:
Ef ég næ bóklega prófinu á ég að hafa samband við ökukennarann og þá hefjast verklegu tímarnir8| Er farin að hlakka svoldið til að geta byrjað á verklegu tímunum:haha:

Svo er ég loksins komin í sumarfrí, reyndar bara fram á 23. júlí og tek svo restina í sept, því að Forstöðuþroskaþjálfinn fer í frí í ágúst og mun ég leysa hana af sem Forstöðuþroskaþjálfi í mánuð:haha: Bara gott að fá að takast á við það, á svona stórum vinnustað, vona að það gangi bara vel hjá ömmu gömlu:haha:

Það fer nú að styttast í komu hans Gogga litla, 4 vikur en ég held að hann verði komin eftir c.a 2 vikur, Tinna er búin að vera á útopnu nánast alla meðgönguna sem hjálpar til við að maður gangi ekki langt fram yfir:haha:
En læt þetta duga í bili, ætla að fara koma mér undir sæng þarf að vakna snemma og fara til Thelmu litlu á morgun að passa af því að hún er svo lasin litla skynnið8| og foreldrarnir að fara að vinna, annars hafa þau alltaf komið með hana:haha:

Hafið það gott elskurnar mína:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 23:47:04 / henngust

Goggi litli bumbubúi



Þetta er sónar mynd af Gogga litla bumbubúa, sem von er á seinnipart Júlí:haha: En Goggi litli er víst með stelpu hjartslátt, en sónarinn segir að hann sé með tippi:haha:



Eftir c.a mánuð verður litla prinsessan hennar ömmu sinna, stóra systir:o En Thelma mín verður alltaf litla prinsessan hennar ömmu sinnar og Goggi litli bumbubúi, verður prinsinn hennar ömmu sinnar, það er að segja ef hann er karlkyns:haha:

Hafið það gott elskurnar mínar:haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.06.2008 15:45:08 / henngust

Seyðisfjörður,Mótorhjól og Snjósleði


Skrapp Austur á Seyðisfjörð um helgina sem var bara gaman:haha: Flaug Austur á fimmtudagskvöldið:lol: Það var verið að standsetja Yamaha-ið fyrir mig:haha: Það gekk brösulega í byrjun, geymirinn var ónýtur þannig það var pantaður annar í snatri og hann var komin í hús um hádegið á föstudeginum:d Þá kom í ljós að kertin voru eitthvað ekki í lagi og Bensínið sem var á tánknum var frá því í fyrravor8| En þetta hafðist og út úr skemmunni fór hjólið, það þurftu náttúrulega allir að prófa, en mín var ekki alveg á því að prófa með fullt af áhorfendum8| Þannig að ég lét það vera þar til eftir kvöldmatinn, þá læddumst við tvö niður í skemmu, en það virkaði lítið innan skammst bar fólk að8) Ég var svo mikil gunga, þorði ekki ein á hjólið fyrst til að byrja með, þannig að Villi sat aftan á hjá mér og leiðbeindi mér, síðan var ekki aftur snúið ég hætti ekki fyrr en um kl 23:00 að hjóla, ein á mótorhjóli niður við höfnina á Seyðis og tímdi ekki að hætta:haha: Verð nú að láta fylgja myndir:haha:







Hún er eitthvað skrítinn þessi mynd, en það sést allavega að ég er á ferð og ekki með lappirnar niðri:haha:

Svo á Laugardeginum, var ég dreginn upp á snjósleða:haha: Þeir þurftu nefnilega að koma Mastri fyrir 112 upp á fjall sem eitir Bjólfur sem er 1060 m hátt og ég sem hafði nástast aldrei farið á snjósleða, fór þetta agjörlega alein, það er að segja ein á sleða, við voru á fjórum sleðum og einni gröfu sem var með mastrið framan á sér:lol:  Þetta er fyrsta skiptið sem vinnuvél fer alla leið þarna upp, við rituðum að sjálfsögðu nöfnin okkar í bók og hvert erindi okkar væri þarna uppi:haha: Það voru hinir og þessir búnir að segja að þetta myndi aldrei ganga upp, það er að segja að vinnuvélin kæmist þetta aldrei, en það á aldrei að segja aldrei:haha: Læt myndir fylgja:haha:



Mastrið sem við fórum upp með:haha:


Þarna er amma gamla á sleðanum sem hún fór upp á, en það er eitthvað að sumum myndunum, veit ekki alveg hvað er í gangi8| Ég á von á fleyri myndum, þannig að kannski ef ég nenni set ég eitthvað af þeim hérna inn á:lol:

Hafið það gott elskurnar mínar:haha:



» 12 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 14:28:05 / henngust

Tilveran....


Í dag 26. mai er fyrsti dagur sem ég er reyklaus, það gengur ennþá, enda kl: ekki nema 13:508| Vona að þetta gangi upp í þetta skiptið, ég reyndar leysti ekki út CHAMPIXIÐ en er að nota tyggjóið8) Afhverju þessi dagur:$ Hann var ákveðin fyrir svolitlu síðan, eða af því að Hafdís fór út til Svíþjóðar í gær og ætlar að vera þar í 10 daga, sem eru yfirleitt erfiðustu dagarnir og þar sem þetta fer yfirleitt í skapið á mér, tók ég þá ákvörðun að þetta væri besti tíminn svo að ég myndi ekki láta skapið bitna á henni:haha: Þar sem að þessi elska er ekki sú duglegasta að ganga frá eftir sig eða að taka til, veit ég að ég myndi láta það pirra mig:$ En ég er líka búin að taka þá ákvörðun að láta þetta ekki fara í skapið á mér:haha:

Sem sagt Hafdís er farin til Swerge og reyna að bjarga síðustu dögunum hjá Önnu Þóru sem auper í Svíþjóð:haha: Heimþráin eða Mömmu þráin eins og hún segir við þá gömlu, er alveg að fara með hana8| En þetta verður fljótt að líða og hún komin á klakann áður en hún veit af:haha: Henni er búið að hlakka svo til að fá Hafdísi út til sýn að hún gat varla beðið eftir því að hún kæmi út8|

Svo ætla ég að nota tækifærið á meðan ég er ein í kotinu að skreppa Austur á Seyðisfjörð, þar mun ég vera á æfingum fyrir mótorhjólaprófið, sem ég er að fara að taka og tek væntanlega í sumar fyrir Norðan:haha: Er búin að fá lánaðann galla og hjálm hjá Tinnu hans Pálma:haha:Hún hló bara þegar að ég var að segja henni að ég ætlaði að fara að taka prófið, skil ekkert í henni:haha::haha: Ástæðan fyrir því að ég tek prófið fyrir Norðan er sú að það er  árs bið í prófið hérna í RVK og ath í ágúst í KEFL, þannig að það var tekin ákvörðun að fara þessa leið, vona bara að hún gangi upp:haha:
Er svo búin að fá vilyrði fyrir YAMAHA 600 að láni:lol: Villi er svo sætur í sér hann bauð mér hjólið sitt að láni og að koma því suður fyrir mig:haha:

Talandi um Villa:haha: Hann er eiginlega bara ótrúlegur, hann gerir allt fyrir mig og meira til, ég þarf oftar en ekki að stoppa hann af, ég má helst ekki segja neitt, þá er hann farin af stað og búin að redda eða kaupa það8| Þannig að núna passa ég mig á að segja ekki of mikið:o Enda sagði ég við hann að þetta væri ekkert sniðugt, því að núna þyrfti ég að passa upp á hvað ég segði, því að það er frekar óþægilegt að það er hlaupið til og hlutunum reddað á engum tíma ef maður opnar munni8| Ekki það að það sé ekki gott og yndislegt að það sé stjanað í kringum mann, heldur er það óþægilegt ef að hlutirnir kosta peninga sem gerir í flestum tilfellum, þar sem að ekkert er ókeypis í dag8| En hann segir alltaf ekki hafa áhyggjur af því hvort að hlutirnir kosta eitthvað, en auðvitað gerir maður það8| en þar sem að peningar hafa ekki verið vandamálið hjá mér, heldur staldra þeir bara stutt við:haha::haha:  Hann keypti handa mér síma um daginn og ég ætla ekki að segja ykkur hvað hann kostaði8| hann er bara flottur Nokia 65008) Æji ætlaði að setja inn mynd af honum, en það gengur eitthvað illa:$


Bronze þarna kom hann:haha:


Læt þetta duga í bili:o

Hafið það gott elskurnar mínar:haha:



» 6 hafa sagt sína skoðun

10.05.2008 13:47:12 / henngust

Óréttlæti, Laugarvegurinn, pössun, og flutningar!


Já ég verð að tjá mig um óréttlæti aðeins:frown: Ég er nefnilega orðin svo þreytt á þessum veðrabreitingum, Anna Þóra er að láta okkur hérna á klakanum aðeins fá smá nasaþef af veðrinu sem er úti í Svíþjóð þessa dagana:$ Bara sól og yfir 20 stiga hiti8| mér finnst bara ekkert réttlæti í þessu:s En kannski að maður sé of fljótur á sér, er það ekki8| á veðrið ekki eftir að koma til okkar innann skamms:haha:

Laugarvegsganga er áætluð 15-20 júlí:haha: Sóló er að fara í þessa göngu og er mar ekkert smá spenntur fyrir þeirri ferð:haha: Fór í gær og keypti mér nýja gönguskó:haha: ógó flottir og ekkert of dýrir heldur:lol: fór svo áðan og keypti vassvörn á þá:haha: skósmiðurinn vildi meina að maður ætti ekki að bera vax á skóna, því að þegar að vaxið hitnar lekur það af8| ég kann ekkert á þetta, er einhver sem hefur hugmynd um hvað sé best að bera á leður gönguskó?

Svo er amman að fara að passa litlu prinsessuna sína alla þá daga sem ég er ekki að vinna og þá morgna sem ég er á kvöldvakt:haha: Hlakka ekkert smá til fá að vera svona mikið með litla dýrið mitt:haha: Mamman ætlar nefnilega að reyna að vinna síðustu vikurnar fyrir fæðingu nýja barnsins eða réttara sagt litla prinsins sem er von á 31. Júlí við köllum hann Gogga hérna heima:haha: Því að þegar að Thelma var bumbubúi var hún kölluð Dórey sem er seinna nafn Tinnu og þá er bara ráð að kalla hann Gogga eða Georg sem er seinna nafn Pálma:haha:

Já svo vorum við að flytja, það er að segja Sambýlið var að flytja út Fýlshólunum og niður ´´i Langagerði:haha: Þau eru reyndar bara flutt 2 inn en það verða 6 íbúar í allt8| En á móti miklu fleyra starfsfólk og þarf maður þá ekki lengur að vera alltaf einn á vakt:haha: sem verður bara nice að hafa smá félagskap af öðru starfsfólki:haha: Þetta eru 5 íbúðir, 4 einstaklings og ein hjónaíbúð:lol:
En það kemur  alltaf í ljós fyrstu dagana hvað mætti fara betur í byggingu nýs hús:lol: Það vantar t.d sjálvirkan hurðaopnara fyrir hjólastólafólkið, dyrasímarnir er eitthvað ekki alllir geta notað, þess vegna verður að gera aðra ráðstöfun fyrir þá sem ekki geta notað hann8|
Svo á fimmtiaginn segir einn píparinn við mig, það eru fleyri en við sem erum í húsinum8| ég skildi ekkert hvað hann átti við8| þá sá hann mús skjótast inn á stórabaðið:^) og þegar að ég var að labba inn í íbúð annars einstaklingsins, þá mætti ég annari sem hreinlega spólaði þegar að hún mætti mér8| bara fyndið, en við náðum annari út en hina lkuðum við inni á stórabaðinu og skaust ég að kaupa límspöld sem voru náttúrulega ekki til:klikk: en keypti gildru og fælu sem er með hátíðnihljóði og ætla ég rétt að vona að það virki8| Þær komast örugglega undir aðalinnganginn því að það er gott bil undir hurðinni, sem þarf klárlega að gera eitthvað í8) Allavega hef ég lítinn áhuga á því að vera elta mýs um allt hús á hverjum degi:frown:

Hafið það gott elskurnar mínar:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 11:49:24 / henngust

Diskókeila!

Fór í Diskókeilu á Föstudaginn með sóló-istum:haha:Þurftum að bíða í klukkutíma eftir að brautirnar yrðu lausar8| en þetta var bara gaman:haha: Set inn 2 myndir, eina af vinningsliðinu og svo eina af þeirri gömlu:haha:







Bara flottust:haha:

Hafið það gott elskurnar mínar:haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 24
Leitarbox

Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 93784
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.